Snemma á þessu ári var
opnuð samráðsgátt á vegum Lyfjastofnunar Evrópu (EMA), forstjóra evrópskra
lyfjastofnana (HMA), og Framkvæmdastjórnar ESB, þar sem hagsmunaaðlium og almenningi er gefinn kostur á að segja álit sitt
á drögum að stefnu um rafrænar lyfjaupplýsingar; þó einungis um lyf fyrir menn.
Frá
þessu var sagt hér á vefnum. Þau drög sem lögð voru fram til umsagnar eru
byggð á ítarlegri umfjöllun á vegum EMA og Framkvæmdastjórnar ESB á síðasta
ári. Meginatriði draganna sem fyrir liggja er það sjónarmið að samræma upplýsingar
um lyf um allt EES-svæðið, og sett eru fram ýmis rök fyrir margvíslegum
ávinningi af notkun rafrænna fylgiseðla.
Hér með er minnt á
samráðsferlið sem stendur til 31. júlí
nk. Það er öllum opið.
Drög
að stefnu um rafrænar lyfjaupplýsingar
Mynd: Katharina Koch, Paul-Ehrlich-Institut