Störf í boði

Lyfjastofnun auglýsir á þessari síðu þau störf sem í boði eru hjá stofnuninni hverju sinni, með greinargóðum upplýsingum um menntunarkröfur, hæfni og umsóknarfrest

Hlutverk Lyfjastofnunar er að tryggja öryggi landsmanna með greiðu aðgengi að lyfjum og lækningatækjum, faglegri þjónustu og hlutlausri upplýsingagjöf byggðri á nýjustu þekkingu. Helstu hlutverk hennar eru að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna um 70 starfsmenn. Lyfjastofnun leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, starfsþróun og framfylgir stefnu um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta. Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á vef stofnunarinnar.

Lyfjastofnun auglýsir laust starf sérfræðings í skráningum lyfja. Starfið heyrir undir markaðsleyfadeild og er á sviði mats og skráningar lyfja. Leitað er að jákvæðum, drífandi og nákvæmum einstaklingi . Um 100% starf er að ræða og er kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu viðfangsefni og ábyrgð:

  • Mat og afgreiðsla umsókna um ný markaðsleyfi
  • Mat og afgreiðsla breytinga og viðhald á útgefnum markaðsleyfum
  • Mat og þýðingar á lyfjatextum
  • Ráðgjöf um skráningarmál
  • Erlent samstarf við aðrar lyfjastofnanir

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf, s.s. af heilbrigðis- eða raunvísindasviði
  • Þekking og/eða reynsla á sviði lyfjaskráninga er kostur
  • Þekking á lyfjaskráningakerfum er kostur
  • Þekking á íslenskri og evrópskri lyfjalöggjöf er æskileg
  • Mjög góð skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Mjög góð teymisvitund, samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Nákvæmni, skilvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð tölvufærni
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
  • Vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og færni

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 10.mars 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

Lyfjastofnun auglýsir laust starf verkefnafulltrúa í markaðsleyfadeild, sem heyrir undir svið mats og skráningar lyfja. Leitað er að jákvæðum, drífandi, nákvæmum og skilvirkum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum sem snúa að umsóknum um skráningu lyfja. Um er að ræða 100% starf og er kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu viðfangsefni og ábyrgð:

  • Móttaka, meðhöndlun og eftirfylgni skráningarumsókna
  • Móttaka og umsýsla ýmissa skráningarverkefna
  • Vöktun pósthólfa

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking eða reynsla á sviði lyfjaskráninga eða viðfangsefnum starfsins er kostur
  • Mjög góð teymisvitund, samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Nákvæmni, skilvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Góð tölvufærni
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

Síðast uppfært: 21. febrúar 2025
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat