Tilgangur með mannauðs- og jafnréttisstefnu Lyfjastofnunar er að leggja grunn að því að Lyfjastofnun sé eftirsóknarverður vinnustaður, fyrir öflugt og metnaðarfullt starfsfólk sem hefur fjölbreytta hæfni, þekkingu og reynslu sem talin er nauðsynleg fyrir starfsemi stofnunarinnar.
Umfang
Stefnan gildir fyrir alla starfsemi Lyfjastofnunar.
Stefna
Lyfjastofnun hefur ávallt á að skipa hæfu, vel menntuðu og metnaðarfullu starfsfólki og býður þeim aðstöðu til að þroskast í starfi. Starfsfólk hefur þá menntun og reynslu sem krafist er til að takast á hendur þau fjölbreyttu verkefni sem stofnuninni eru falin samkvæmt þeirri löggjöf sem hún starfar eftir.
Stefnumið
Starfsumhverfi
Lyfjastofnun hefur það að markmiði að skapa starfsmönnum sínum öruggt og eflandi starfsumhverfi.
Áhersla er lögð góða upplýsingamiðlun til starfsfólks og að samskipti séu uppbyggileg og endurspeglist af virðingu.
Lyfjastofnun leggur áherslu á sveigjanlegt vinnuumhverfi og viðveru á vinnustað ,svo starfsfólk geti viðhaldið jafnvægi í lífi og starfi. Reglur um viðveru starfsfólks eru útfærðar sérstaklega í viðverustefnu stofnunarinnar.
Jafnrétti og jöfn laun
Lyfjastofnun stefnir að því að jafnrétti meðal borgaranna og starfsfólks sé virt og að jafnrétti sé í samræmi við lög er varða jafna stöðu og jafnan rétt á vinnumarkaði. Þetta felur meðal annars í sér að starfsfólk Lyfjastofnunar njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Starfsfólki er ekki mismunað eftir kynferði, aldri, trúarbrögðum, skoðunum, þjóðerni, kynþætti, kynhneigð, efnahag, ætterni, fjölskyldutengslum eða stöðu að öðru leyti. Þetta á sérstaklega við um nýráðningar og breytingar á stöðu eða starfskjörum. Allt starfsfólk stofnunarinnar nýtur jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Lyfjastofnun skuldbindur sig til að:
- Innleiða vottað jafnlaunastjórnunarkerfi sem byggist á staðlinum ÍST 85, skjalfesta og viðhalda með stöðugum umbótum, eftirliti og viðbrögðum
- Fylgja viðeigandi lagalegum kröfum og öðrum kröfum sem í gildi eru og áhrif hafa á jafnlaunastjórnunarkerfið, og staðfesta árlega að þeim sé fylgt
- Framkvæma launagreiningu a.m.k. árlega þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmæt störf og þannig kanna hvort óútskýrður kynbundinn launamunur mælist á launum eftir kyni, og kynna helstu niðurstöður fyrir því starfsfólki sem er til úttektar, nema persónuverndarhagsmunir mæli gegn því
- Bregðast við frávikum og tækifærum til framfara með stöðugum umbótum og eftirliti.
- Gera innri úttekt á ferlum jafnlaunastjórnunarkerfisins.
- Virkni jafnlaunastjórnunarkerfisins er tekin fyrir í rýni stjórnenda.
Samskipti
Lyfjastofnun vill skapa starfsumhverfi og menningu þar sem starfsfólki líður vel. Slíkt er gert með markvissu forvarnarstarfi, skýrum verkferlum og stuðningi. Einnig með forvarna- og viðbragðsáætlun vegna eineltis, kynferðis- eða kynbundins áreitis og ofbeldis, (hér eftir nefnd EKKO).
Með forvarna- og viðbragðsáætlun eru úrræði skilgreind, unnið að forvörnum og verkferlar tilgreindir, í samræmi við ákvæði laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, og reglugerð nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni, sem og öðru ofbeldi.
Starfsþróun
Lögð er áhersla á faglega þjálfun, endurmenntun og starfsþróun meðal starfsmanna, til að tryggja þá þekkingu og færni sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi, til að stofnunin sé á hverjum tíma sem best í stakk búin til að takast á við þau verkefni sem henni eru falin og ekki síður til að stuðla að þroska og starfsánægju starfsfólks. Starfþróunarsamtöl eru reglubundin innan stofnunar og hafa það meðal annars að markmiði að hvetja til umræðu um símenntun og starfsþróun.
Mælikvarðar
- Vottun jafnlaunakerfis
- Starfað er samkvæmt jafnréttisáætlun stofnunarinnar
- Viðhorfskannanir meðal starfsfólks þar sem starfsánægja er mæld út frá skilgreindum þáttum, markmið að starfsánægja mælist á styrkleikabili
- Árleg starfsmannasamtöl tekin við allt starfsfólk þar sem líðan og viðhorf þess er rætt og þörf til starfsþjálfunar og endurmenntunar er metin og viðbrögð ákveðin
Upplýsingagjöf
Upplýsingagjöf um árangur innleiðingar og eftirlits með mannauðs- og jafnréttisstefnu á sér stað reglulega á innri samskiptasvæðum stofnunarinnar, eftir því sem niðurstöður mælinga liggja fyrir.
Þessi stefna er kynnt öllu starfsfólki Lyfjastofnunar og er einnig aðgengileg á vef Lyfjastofnunar.
Gildistaka og endurskoðun
Stefnan er sett af forstjóra Lyfjastofnunar að fenginni tillögu frá mannauðsstjóra stofnunarinnar og samþykki framkvæmdaráðs. Stefnan gildir frá og með staðfestingu forstjóra sem kemur fram með samþykktarferli skjala stjórnunarkerfis.