16. október 2024
Markaðssettu lyfin Rilutek og Riluzol Actavis eru ófáanleg hjá heildsölu.
Vegna skorts á markaðssettu lyfjunum Rilutek 50 mg og Riluzol Actavis 50 mg, heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Rilutek og Riluzol Actavis í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:
- Vnr. 998114 Rilutek 50 mg töflur 56 stk.
Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir markaðssettu lyfin yfir í undanþágulyfið Rilutek gildir til 2. desember 2024.
Undanþágulyfið er í dönskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Sanofi Winthrop Industrie. Heildsalan Distica sér um dreifingu á lyfinu.
Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar heimild þessi er nýtt, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.