Ringer-Acetat Baxter Viaflo innrennslislyf, lausn

Markaðssetta lyfið Ringer-Acetat Baxter Viaflo er ófáanlegt.

16. janúar 2025

Vegna áframhaldandi skorts á markaðsetta lyfinu Ringer-Acetat Baxter Viaflo 1000 ml heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir markaðssett Ringer-Acetat Baxter Viaflo 1000 ml í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 999344 Ringer Acetate Ecoflag B.Braun irl 1000 ml * 10 

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir markaðssett lyf yfir í ofangreint undanþágulyf gildir til 4. febrúar 2025.

Undanþágulyfið er frá Þýskalandi og er markaðsleyfishafi lyfsins B.Braun. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

13. desember 2024

Undanþágulyfið Ringer Acetate Bischsel irl 1000 ml (vnr. 999378) hefur verið útvegað.

Vegna skorts á markaðssetta lyfinu Ringer-Acetat Baxter Viaflo 1000 ml heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir markaðssett Ringer-Acetat Baxter Viaflo 1000 ml í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 999378 Ringer Acetate Bischel irl 1000 ml 

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir markaðssett lyf yfir í ofangreint undanþágulyf gildir til 15. janúar 2025.

Undanþágulyfið er frá Sviss og er markaðsleyfishafi lyfsins Bichsel AG. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 16. janúar 2025
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat