21. júlí 2021
Skráða lyfið Kolsuspension mixtúra 150 mg/ml er nú fáanlegt aftur hjá heildsala.
14. júlí 2021
Skráða lyfið Kolsuspension mixtúra 150 mg/ml er nú ófáanlegt hjá heildsala. Verið er að vinna í að fá lyfið til landsins sem fyrst og er það væntanlegt þann 27. júlí.
Ráð til lækna og lyfjafræðinga:
Eitthvað er til af birgðum í apótekum og heilbrigðisstofnunum. Einnig er fáanlegt undanþágulyf hjá heildsölunni Parlogis, sem inniheldur lyfjakol í öðrum styrkleika:
- Vnr. 950403 Actidose Aqua 25 g/120 ml
Ráð til lyfjanotenda:
Eitthvað er til af birgðum í apótekum og heilbrigðisstofnunum. Lyfjanotendum er bent á að hringja á undan sér og kanna hvort lyfið sé fáanlegt í viðkomandi apóteki. Listi yfir apótek á Íslandi.