7.júní 2021
Skráða lyfið Duspatalin Retard 200mg forðahylki 30stk er nú ófáanlegt hjá heildsala. Lyfið er væntanlegt aftur í viku 25.
Ráð til lækna og lyfjafræðinga:
Enn eru til einhverjar birgðir af lyfinu í apótekum. Einnig er fáanlegt undanþágulyf hjá heildsölunni Parlogis, sem inniheldur virka efnið mebeverinum en í öðrum styrkleika :
Vnr. 955578 Duspatalin 135mg töflur 50stk.
Ráð til lyfjanotenda:
Enn eru til einhverjar birgðir af lyfinu í apótekum. Lyfjanotendum er bent á að hringja á undan sér í apótek og kanna hvort lyfið sé fáanlegt í viðkomandi apóteki. Listi yfir apótek á Íslandi.