Skráða lyfið Centyl með kalíumklorid 2,5mg+573mg 100 fh.töflur er nú ófáanlegt hjá heildsala. Lyfið er væntanleg aftur í viku 29.
Ráð til lækna og lyfjafræðinga:
Enn eru til einhverjar birgðir af lyfinu í apótekum. Einnig er fáanlegur annar styrkleiki af lyfinu hjá heildsala:Centyl mite með kaliumklorid 1,25mg + 573mg.
Ráð til lyfjanotenda:
Enn eru til einhverjar birgðir af lyfinu í apótekum landsins. Lyfjanotendum er bent á að hringja á undan sér í apótek og kanna hvort lyfið sé fáanlegt í viðkomandi apóteki. Listi yfir apótek á Íslandi.