Æskilegt er að gæta varúðar þegar lækningatæki sem þessi eru notuð og forðast skal kaup á fölsuðum vörum. Með eftirfarandi upplýsingum vekur Lyfjastofnun athygli á nokkrum áhættuþáttum sem fylgja því að kaupa fölsuð fyllingarefni.
- Ekki er tryggt að framleiðslu- og flutningsskilyrði uppfylli neytendakröfur og þar af leiðandi eru gæði og öryggi þessara vara ekki tryggð.
- Hættuleg efni eða óstaðfest dauðahreinsun á vörum getur leitt af sér ýmsa fylgikvilla s.s. sýkingar, ofnæmi, bruna o.fl.
- Ekkert samræmismat á sér stað fyrir þessar vörur og geta lögbær yfirvöld því ekki tryggt öryggi varanna.
Hvernig má forðast falsaðar vörur?
- Kaupið vörur beint frá framleiðanda eða opinberum dreifingaraðila hans.
- Forðist að bregðast við auglýsingum sem eru of góðar til að vera sannar
- Gangið úr skugga um að réttar merkingar séu til staðar á vöru. Einkum CE merking ásamt fjórum tölustöfum tilkynnts aðila fyrir neðan CE merkið.
- Sendið framleiðanda lotunúmer og fyrningardagsetingu á vöru til að sanna gildi vörunnar ef vaki leikur á um það.
Hvert má tilkynna vitneskju eða grun um falsaða vöru?
Grun eða vitneskju um falsaðar vörur sem falla undir skilgreiningu á lækningatæki án læknisfræðilegs tilgangs má tilkynna til Lyfjastofnunar í gegnum netfangið [email protected]
Nánar um fyllingarefni í fegrunartilgangi
Efni, efnasamsetningar eða hlutir sem sprautað er undir húð til fyllingar í fegrunartilgangi eru lækningatæki í hæsta áhættuflokki, flokki III. Þegar þau eru markaðsett skulu þau hafa ESB-samræmisyfirlýsingu þar sem framleiðandi staðfestir að tækin uppfylli kröfur sem settar eru fram í reglugerð um lækningatæki. Þar sem um er að ræða lækningatæki í áhættuflokki III skal tilkynntur aðili vera tilgreindur á ESB-samræmisyfirlýsingu. CE merki skal vera á lækningatæki og á umbúðum þess. Á umbúðum tækisins skal auk þess númer tilkynnta aðilans (fjórir tölustafir) vera skilgreint með CE merkinu.