Sérstök áhersla var lögð á að veita nemunum góða innsýn í kjarnastarfsemi Lyfjastofnunar. Þær komu því víða við hjá stofnuninni á meðan á starfsnáminu stóð.
Meðal verkefnanna sem þær kynntu sér voru:
- Störf lyfjafræðings í samskiptadeild
- Verð- og greiðsluþátttökumál lyfja
- Verkefni lyfjagátarteymis sem er m.a. ábyrgt fyrir móttöku og úrvinnslu aukaverkanatilkynninga
- Störf markaðseftirlitsdeildar á eftirlitssviði ásamt því sem þær fengu tækifæri til að fylgja eftirlitsmönnum okkar eftir í úttekt í apóteki
- Verkefni klínísks sviðs sem m.a. er ábyrgt fyrir innlendu og erlendu samstarfi á sviði vísindaráðgjafar og klínískra lyfjarannsókna
Þá fengu þær að spreyta sig á verkefnum, meðal annars frétta- og greinaskrifum fyrir samskiptadeild og yfirfara þýðingar á lyfjaformum fyrir verð- og greiðsluþátttökuteymi.
Þær Aldís Huld og Vildís Kristín sögðu það hafa staðið uppúr hversu vel starfsfólk Lyfjastofnunar tók þeim.
Starfsfólk Lyfjastofnunar tók okkur með opnum örmum, allir voru svo vinalegir og það var gaman að fá að kljást við alvöru verkefni
Aldís Huld og Vildís Kristín, lyfjafræðinemar
Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar sagði ánægjulegt að hafa fengið að taka þátt í þessu verkefni.
Starfsnám lyfjafræðinema er komið til að vera hjá okkur í Lyfjastofnun
Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar