Lyfjastofnun vekur athygli á breytingum á ATC-flokkunarkerfi lyfja fyrir menn/dýr sem tóku gildi 1. janúar sl. samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) fyrir mannalyf og dýralyf.
Breytingar á ATC fyrir mannalyf.
Breytingar á ATCvet fyrir dýralyf.
Nýir ATCvet flokkar fyrir dýralyf.
ATC-flokkunarkerfi (manna og dýra) á vef Lyfjastofnunar hefur verið uppfært í samræmi við ofangreindar breytingar.
Markaðsleyfishafar skulu sækja um breytingu á SmPC þar sem það á við í samræmi við reglur þar að lútandi.
Ósamræmi gæti orðið milli ATC-listans og SmPC viðkomandi lyfja þar til markaðsleyfishafi hefur sent Lyfjastofnun umsókn um slíka um breytingu og hún afgreidd.