Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið fjölgun skráðra lyfja, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.
Listinn hér að neðan sýnir þau lyf í undanþágukerfinu sem læknar ávísuðu oftast í þessum tiltekna mánuði árið 2022 og þá ekki vegna tímabundins skorts skráðra lyfja. Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í lyfjaverðskrá.
Lyfjaheiti | Lyfjaform | Virkt innihaldsefni | Norrænt vnr. | Fj. áv. |
Doloproct | Endaþarmsstílar | lídókaín / flúókortólón | 980286 | 501 |
Doloproct | Endaþarmskrem | lídókaín / flúókortólón | 982331 | 440 |
Xyloproct | Endaþarmsstílar | lídókaín / hýdrókortisón | 980369 | 200 |
Sem mixtúra | mixtúra | Blöndur | 962242, 962234 | 188 |
Xyloproct | Endaþarmskrem | lídókaín / hýdrókortisón | 980377 | 170 |
Utrogest | Hylki | prógesterón | 987498 | 154 |
Senokot | Töflur | senna | 980533 | 102 |
Morfin "dak" | Töflur | morfín | 969181, 969777 | 101 |
Miralax | Lausnarduft | pólýetýlen glýkol | 958829 | 99 |
Alimemazine orifarm | Dropar | alímemazín | 982787 | 83 |
Thiamazol | Töflur | thiamazole | 988967 | 78 |
Quinine sulfate | Töflur | kínín | 975592 | 77 |
Bromam (6 mg) | Töflur | brómazepam | 984626 | 67 |
Levome-promazine orion (5 mg) | Töflur | levómeprómazín | 980955 | 64 |
Halcion | Töflur | tríazólam | 988347 | 63 |
Glycerol infant | Endaþarmsstílar | glýceról | 944852 | 56 |
Condyline | Húðlausn | pódófýllótoxín | 975831 | 56 |
Emgesan | Töflur | magnesíum hýdroxíð | 975435 | 56 |
Trimipramin neurax-pharm | Töflur | trímipramín | 979693 | 55 |
Rohypnol | Filmuhúðaðar töflur | flúnítrazepam | 980591 | 53 |
Betapred | Lausnarduft | betametasón | 7997 | 50 |
Mogadon | Töflur | Nítrazepam | 981169 | 47 |
Nozinan | Töflur | levómeprómazín | 979867 | 46 |