Tilkynntar aukaverkanir fyrstu sex mánuði ársins

Fjöldi tilkynninga er svipaður og var fyrir heimsfaraldur COVID-19. Að meðaltali bárust Lyfjastofnun 25 aukaverkanatilkynningar á mánuði fyrri hluta ársins. Minnt skal á þá skyldu heilbrigðisstarfsfólks að tilkynna grun um alvarlega, nýja eða óvænta aukaverkun af notkun lyfs

Fyrri hluta þessa árs bárust Lyfjastofnun lítilllega fleiri tilkynningar um aukaverkanir en voru að meðaltali á mánuði fyrir heimsfaraldur. Flestar urðu tilkynningarnar í ár í marsmánuði, 29 talsins, en fæstar í janúar, 18. Tilkynningar af alvarlegum toga voru í öllum mánuðunum færri eða jafnmargar þeim sem ekki teljast alvarlegar.

Minna má á að tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir lyfja eru sérstaklega mikilvægar, þótt allar tilkynningar um aukaverkanir skipti máli. Þær veita mikilvægar upplýsingar sem leitt geta til þess að öryggi og verkun lyfs er endurmetin.


Lyfjafræðingar og notendur sendu flestar tilkynninga

Hvað tilkynnendur varðar eru lyfjafræðingar og notendur lyfja þeir sem flestar tilkynningar senda á þessu tímabili. Lyfjafræðingar sendu 60 tilkynningar alls, notendur 50. Læknar sendu 14 tilkynningar, annað heilbrigðisstarfsfólk 11. Í níu tilvikum var staða tilkynnanda ekki tilgreind.

Minnt skal á að heilbrigðisstarfsfólki sem hefur grun um að skjólstæðingur hafi fengið alvarlega, nýja eða óvænta aukaverkun af notkun lyfs, er skylt að tilkynna það til Lyfjastofnunar. Þessi skylda er bundin í lög sem tóku gildi í ársbyrjun 2021, hana er að finna í 63. gr. lyfjalaga.

Rétt er að taka fram að um tilkynningar vegna gruns um aukaverkun er að ræða. Það merkir að tilkynnt tilvik hafa átt sér stað í kjölfar lyfjanotkunar, en segir ekki til um hvort um orsakasamhengi sé að ræða milli tilvikanna og lyfjanotkunarinnar.

Fjölda aukaverkanatilkynninga ber alltaf að skoða í samhengi við notkun lyfs eða bóluefnis.

Mikilvægt að tilkynna um aukaverkun lyfs

Enn skal ítrekað að aukaverkanatilkynningar veita mikilvægar upplýsingar um öryggi lyfja þegar þau eru komin í almenna notkun. Því er rétt að hvetja almenning jafnt sem heilbrigðisstarfsfólk til að senda upplýsingar um slík tilvik til Lyfjastofnunar.

Allir geta tilkynnt grun um aukaverkun lyfs

Hægt er að tilkynna rafrænt í gegnum gátt á vef Lyfjastofnunar. Auk þess getur heilbrigðisstarfsfólk tilkynnt í gegnum Sögukerfið á þar til gerðu eyðublaði.

Síðast uppfært: 5. júlí 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat