Lyfjastofnun tók í notkun netspjall fyrir um ári síðan. Netspjallið hefur reynst vel í að þjónusta viðskiptavini stofnunarinnar á opnunartíma. Viðskiptavinir eru hvattir til að prófa að nota netspjallið í samskiptum sínum við Lyfjastofnun. Netspjallið er opið alla virka daga milli 9:00-15:00.
Vissir þú að netspjallið hefur eftirtalda kosti?
- Sérþjálfað starfsfólk okkar vaktar netspjallið á opnunartíma
- Netspjallið er þægilegt og einfalt í notkun. Hægt er að nota netspjallið í tölvu eða snjalltæki. Ekki þarf að hlusta á símsvara áður en samband er gefið við starfsmann Lyfjastofnunar.
- Biðtími er lítill.
- Svör eru veitt í netspjalli þegar það er hægt. Við leggjum okkur fram um að veita svör í fyrstu snertingu. Það þýðir að starfsfólkið okkar sem svara netspjalli hefur fengið þjálfun í að greina og svara ákveðnum erindum. Auk þess tryggjum við að starfsfólk netspjalls sé með nýjustu nauðsynlegu upplýsingar hverju sinni.
- Afrit af samskiptunum bæta gæðin. Hægt er að fá sent afrit af samskiptunum í uppgefið netfang, ef þess er óskað. Ef erindið er sent áfram til úrlausnar til samstarfsfólks okkar fylgja samskiptin úr netspjallinu með sem eykur gæðin.
- Hægt er að nýta tímann í annað á meðan beðið er eftir úrlausn erindisins.
Svona virkar netspjallið
Til þess að hefja netspjall er opnaður þráður á forsíðu vefs Lyfjastofnunar með því að smella á Hefja spjall, neðst í hægra horninu. Upplýsingar um nafn og netfang eru slegnar inn og því næst er smellt á hnappinn Byrja spjall.