Lyfjaverðskrá sem tekur gildi þann 1. desember hefur verið gefin út. Einnig listi yfir helstu breytingar og listi yfir lyf sem falla undir skilyrta greiðsluþátttöku. Nálgast má útgefin skjöl á vefsíðu Lyfjastofnunar.
Eins og áður hefur verið tilkynnt um er verðskráin gefin út í nýju kerfi og hafa lyfjaverðskrá og undanþágulyfjaverðskrá verið sameinaðar í eina skrá. Lýsingar á nýju verklagi vefþjónustu er hægt að nálgast í vefþjónustuskjali en einnig er hægt að lesa inn skrána með eldra verklagi.
Fyrirspurnir óskast sendar á netfangið [email protected]