Laust starf hjá Lyfjastofnun

Auglýst er eftir fulltrúa í þjónustuver

Lyfjastofnun óskar eftir að ráða fulltrúa í þjónustuver. Viðkomandi mun sinna móttöku viðskiptavina og bera ábyrgð á þjónustu og dreifingu erinda sem berast í pósthólf Lyfjastofnunar ásamt því að þjónusta bæði starfsfólk og hagsmunaaðila. Leitað er að jákvæðum, sveigjanlegum, drífandi og þjónustulunduðum einstaklingi sem býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni. Um er að ræða 100% starf og er kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst. Gert er ráð fyrir að viðkomandi sé með viðveru á opnunartíma Lyfjastofnunar.

Helstu viðfangsefni og ábyrgð:

  • Umsjón erinda sem berast í pósthólf Lyfjastofnunar
  • Vöktun netspjalls og símtalsbeiðna
  • Vörumóttaka og móttaka viðskiptavina
  • Samskipti við þjónustuaðila og viðskiptavini
  • Innkaup á rekstrarvörum og aðföngum
  • Þátttaka í innkaupum og aðstoð vegna stærri viðburða á vegum Lyfjastofnunar
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Góð skipulagshæfni ásamt ríkri þjónustulund og jákvæðni
  • Mjög góð teymisvitund og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
  • Góð almenn tölvuþekking
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli

Umsóknarfrestur er til og með 28. nóvember 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

Síðast uppfært: 21. nóvember 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat