Ársskýrsla Lyfjastofnunnar fyrir árið 2021 er komin út á vef stofnunarinnar. Ársskýrslan kemur út í fyrsta sinn á vefviðmóti.
Árið var viðburðaríkt hjá Lyfjastofnun og einkenndist af verkefnum tengdum COVID-19. Mikil aukning varð á tilkynntum aukaverkunum. Að meðaltali bárust fleiri tilkynningar mánaðarlega en áður bárust árlega. Fjöldi erinda frá almenningi og fjölmiðlum barst á árinu enda mikill áhugi fyrir upplýsingum um ýmislegt tengt bóluefnunum.
Þrátt fyrir að fátt annað en COVID-19 hafi komist að þá voru mörg önnur stór og mikilvæg verkefni unnin á árinu. Fyrsta dag ársins tóku ný lyfjalög gildi sem samþykkt voru árið 2020. Skipulagsbreytingar urðu innan stofnunarinnar og erlendu samstarfi var haldið áfram.
Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, lítur yfir árið í ávarpi sínu og ræðir þær áskoranir sem þurfti að takast á við. Hún þakkar starfsmönnum sínum fyrir þol, seiglu og góða samvinnu.
Það má með sanni segja að árið 2021 hafi verið viðburðaríkt hjá Lyfjastofnun og reynt hefur á seiglu og þol starfsmanna og stjórnenda. Við horfum samt björtum augum fram á við, tilbúin að takast á við ný og gömul verkefni.
Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar.
Ársskýrslan er aðgengileg í heild sinni á vef stofnunarinnar.