Í lok árs 2021 voru 74 apótek starfandi hér á landi auk sjúkrahúsapóteks Landspítalans, samtals 75 apótek*. Á árinu hættu tvö apótek starfsemi. Lyfja hf. og Lyf og heilsa hf. voru stærstu apótekskeðjurnar, Lyfja með 22 apótek og Lyf og heilsa með 27 apótek í rekstri. Tvær aðrar keðjur sem hvor um sig hafa 3 apótek í rekstri eru starfandi í landinu, annars vegar Lyfjaval ehf., hins vegar Lyfsalinn ehf. Lyfjaval ehf. og Lyfsalinn ehf. eru í eigu sama aðila.
Auk apótekanna eru 28 lyfjaútibú í rekstri á landinu. Lyfja hf. Lyf og heilsa hf. eru umsvifamest í rekstri lyfjaútibúa, Lyfja með 23 útibú og Lyf og heilsa með 4. Alls eru 2 útibú í flokki eitt, 14 útibú í flokki tvö og 12 útibú í flokki þrjú. Langflest útibú eru starfandi á Norðurlandi eða 10 talsins. Upplýsingar um mismunandi tegundir lyfjaútibúa og skilgreiningar á þeim má finna á vef Lyfjastofnunar.
Á landsbyggðinni eru reknar fjórar lyfsölur í tengslum við rekstur heilsugæsla til að tryggja lyfjadreifingu þar sem langt er í næstu apótek.
Apótek af meðalstærð
Apótek af meðalstærð í árslok 2021 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 |
Afgreiðslutími á viku | 52,6 | 52,5 | 53,9 | 53,2 | 53,7 |
Fjöldi lyfjafræðinga | 1,6 | 1,5 | 1,5 | 1,6 | 1,6 |
Fjöldi lyfjatækna | 0,6 | 0,5 | 0,4 | 0,4 | 0,4 |
Fjöldi annarra starfsmanna | 2,3 | 2,3 | 2,4 | 2,1 | 2,4 |
Fjöldi apóteka
Fjöldi apóteka árið 2021 eru 75 talsins og var tveimur apótekum lokað á árinu 2021.
Ár | Fjöldi apóteka* | Fjöldi landsmanna 1. janúar |
2018 | 72 | 348.450 |
2019 | 76 | 356.991 |
2020 | 77 | 364.134 |
2021 | 75 | 368.792 |
Fjöldi lyfjaávísana
Heildarfjöldi lyfjaávísana hefur aukist stöðugt milli ára, þó aukningin hafi verið að jafnast út síðastliðin ár. Árið 2021 markaði mestu aukningu milli ára síðastliðin fimm ár. Þá hefur lyfjaávísunum fjölgað um 17,7% á tímabilinu 2017-2021.
Ár | Heildarfj. ávísana | Árleg fjölgun í % | Uppsöfnuð fjölgun frá 2017 |
2017 | 3.669.362 | 5,3% | - |
2018 | 3.804.888 | 3,7% | 3,7% |
2019 | 3.908.671 | 2,7% | 6,5% |
2020 | 4.043.440 | 3,4% | 10,2% |
2021 | 4.318.902 | 6,8% | 17,7% |
Munur milli landshluta
Þegar staðan milli landshluta er skoðuð sést að langstærstur hluti afgreiðslustaða er á höfuðborgarsvæðinu, þar sem ríflega 46% apóteka landsins eru staðsett. Næst kemur Norðurland með 8 apótek og 10 útibú. Austurland sker sig síðan úr í þessu samhengi með einungis tvö apótek, fimm útibú, og eina lyfsölu sem rekin er í tengslum við heilsugæslustöð. Á Suðurlandi voru fimm apótek, fimm útibú og tvær lyfsölur sem eru reknar í tengslum við heilsugæslustöð. Á Vesturlandi og Vestfjörðum voru fimm apótek, fimm útibú og ein lyfsala sem er rekin í tengslum við heilsugæslustöð. Á Suðurnesjum voru fimm apótek og þrjú útibú. Til einföldunar voru landshlutarnir Norðurland eystra og Norðurland vestra sameinaðir í einn landshluta, Norðurland. Hið sama var gert fyrir Vesturland og Vestfirði.
Fjöldi | Höfuðb.sv. | Suður-nes | Suður-land | Austur-land | Norður-land | Vestur- land og Vest- firðir |
Fjöldi apóteka | 50/48** | 5 | 5 | 2 | 8 | 5 |
Fjöldi útibúa | 0 | 3 | 5 | 5 | 10 | 5 |
Fjöldi lyfsala hgs. | 0 | 0 | 2 | 1 | 0 | 1 |
Heildar- fjöldi | 50/48** | 8 | 12 | 8 | 18 | 11 |
** Afgreiðslur áttu sér stað úr 50 apótekum á árinu 2021 en 2 lokuðu á árinu.
Fjöldi afgreiðslustaða lyfja á hvern íbúa
Ef fjöldi afgreiðslustaða lyfja miðað við íbúafjölda er skoðaður sést að fjöldi íbúa á hvern afgreiðslustað er hæstur í Reykjavík eða 4.818 íbúar á hvert apótek, m.v. mannfjöldatölur 1. janúar 2022 frá Hagstofunni (og fjölda apóteka á sama tíma). Að sama skapi eru langfæstir íbúar á Austurlandi á bak við hvern afgreiðslustað en þar er að finna tvö apótek og sex útibú. Þar eru 1.226 íbúar á hvern afgreiðslustað lyfja.
*Apótek eru talin með eftirtöldum hætti: starfandi apótek skv. lyfsöluleyfi, ásamt apóteki Landspítalans.
Heimildir:
Niðurstöður árlegra kannanna um mönnun apóteka, framkvæmdar af Lyfjastofnun
Fólksfjöldatölur frá Hagstofu Íslands
Fjöldi lyfjaávísana frá Sjúkratryggingum Íslands