Afgreiðslutími Lyfjastofnunar verður óbreyttur í sumar. Dagana 20. júlí til 31. júlí 2020 verður hins vegar lágmarksþjónusta vegna sumarleyfa starfsfólks.
Einkum verða takmarkanir í eftirtöldum málaflokkum:
- Móttaka umsókna um klínískar lyfjarannsóknir
- Móttaka umsókna um inn- og útflutningsleyfi ávana- og fíkniefna og eftirlitsskyldra efna.
- Móttaka umsókna um CPP vottorð