Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) um lyf fyrir menn (CHMP) hefur hafið áfangamat (e. rolling review) á öðru bóluefninu við COVID-19 sem nú er kallað BNT162b2. Umrætt bóluefni hefur verið þróað af fyrirtækinu BioNTech í samstarfi við Pfizer.
Ákvörðun CHMP að hefja mat á bóluefninu byggir á fyrstu niðurstöðum frá rannsóknarstofum og fyrstu klínísku rannsóknum í mönnum. Þær niðurstöður benda til að bóluefnið stuðli að framleiðslu mótefna og T-frumna (frumur ónæmiskerfisins) sem ráðist gegn SARS-CoV-2 kórónaveirunni. Áfangamatið felur í sér, að nefndin metur nú fyrstu haldbæru gögn um bóluefnið. Ekki verður hægt að segja til um virkni eða öryggi bóluefnisins á þessu stigi þar sem nefndinni eiga enn eftir að berast margvíslegar upplýsingar.
Klínískar rannsóknir enn í gangi
Stórar klínískar rannsóknir með nokkur þúsund þátttakendum eru nú í gangi og er niðurstaðna að vænta næstu vikur og mánuði. Þær munu leiða í ljós hversu vel bóluefnið ver fólk gegn COVID-19, ásamt því hversu öruggt það er.
Matsferlið mun halda áfram þar til nægileg gögn styðja formlega umsókn um markaðsleyfi fyrir bóluefnið. EMA mun ljúka mati sínu á gæðum, öryggi og virkni í samræmi við hefðbundna staðla. Þrátt fyrir að ekki sé hægt að segja til um hvenær mati á bóluefninu lýkur, er óhætt að gera ráð fyrir að ferlið taki styttri tíma en ella vegna áfangamatsins.
Hvernig er reiknað með að bóluefnið virki?
Reiknað er með að bóluefnið virki með því að undirbúa líkamann til að verjast sýkingu af völdum kórónaveirunnar SARS-CoV-2. Veiran notfærir sér gaddaprótein á yfirborði sínu (e. spike proteins) til að komast inn í frumur líkamans og valda sjúkdómi.
Bóluefnið inniheldur genaupplýsingar (mRNA) fyrir gaddapróteinin og er hjúpað litlum fituögnum sem verja þær fyrir niðurbroti. Þegar bóluefnið hefur verið gefið lesa frumur líkamans genaupplýsingarnar og hefja framleiðslu á gaddapróteinum. Ónæmiskerfið lítur á þau sem framandi fyrirbæri og tekur til varna með því að framleiða mótefni og T-frumur gegn veirunni. Sú vörn mun síðar koma að gagni til að verja viðkomandi einstakling gegn sýkingu af völdum SARS-CoV-2 kórónaveirunnar, þar sem ónæmiskerfið kemur til með að þekkja veiruna og ráðast gegn henni. Mótefni og T-frumur munu þá vinna saman að því að drepa veiruna, meina henni aðgang í frumur, drepa sýktar frumur, og þar með verja einstaklinginn gegn COVID-19.
Hvað er áfangamat?
EMA getur beitt áfangamati til að flýta fyrir matsferli vænlegra lyfja eða bóluefna þegar almenn heilsuvá geisar. Alla jafna þurfa lyfjafyritæki að senda inn öll gögn um virkni, öryggi og gæði lyfja áður en mat hefst, en í áfangamati eru gögnin metin eftir því sem þau verða tiltæk.